Viðurkenningar yngri flokka
Uppskeruhátíð Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Keflavíkur var haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í gær. Á hátíðinni var farið yfir knattspyrnuárið og voru veittar viðurkenningar til fjölmargra efnilegra knattspyrnumanna. Auk þess að veita verðlaun til þeirra sem skáru fram úr í hverjum flokki fyrir sig voru veitt verðlaun til þeirra sem skáru fram úr yfir alla yngri flokkana. Viðurkenningu fyrir mestu framfarir hlaut Hervar Bragi Eggertsson og Tinna Rut Þórarinsdóttir. Bestu félagarnir eru Eiríkur Örn Jónsson og Justyna Wróblewska. Bestu markmennirnir voru valdir Árni Freyr Ásgeirsson og Arna Lind Kristinsdóttir. Bestu varnarmennirnir eru Viktor Smári Hafsteinsson og Bryndís Bjarnadóttir, bestu miðjumennirnir eru Magnús Þór Magnússon og Sigurbjörg Auðunsdóttir, bestu sóknarmennirnir eru Þórður Rúnar Friðjónsson og Andrea Ósk Frímannsdóttir og bestu leikmenn yngri flokkana voru valdir Sigurbergur Elisson og Rebekka Gísladóttir.
Góður árangur náðist í mörgum flokkum þó engir stórir titlar hefðu unnist. Bestum árangri náði 4 flokkur drengja sem hafnaði í 3ja sæti á Íslandsmótinu, þá voru fjölmargir leikmenn bæði strákar og stelpur kallaðir til æfinga með yngri landsliðum Íslands.
Á síðasta ári æfðu 373 strákar og stelpur í 9 flokkum með Keflavík. Sex þjálfarar eru starfandi fyrir Barna- og unglingaráð, en yfirþjálfari drengjaflokkana er Zoran Daníel Ljubicic og yfirþjálfari stúlknaflokkana er Elis Kristjánsson. Formaður Barna- og unglingaráðs er Smári Helgason.
Piltaflokkar 7. flokkur yngri 5. flokkur yngri |
Stúlknaflokkar 6. flokkur 5. flokkur 4. flokkur Allir flokkar |
Sigurbergur Elisson besti leikmaður yngri flokka Keflavíkur 2006 með Guðmundi Steinarssyni
fyrirliða meistarflokks Keflavíkur og Þórarni Kristjánssyni.
Verðlaunahafar yfir alla yngri flokka stúlkna.
Frá vinstri. Tinna Rut Þórarinsdóttir, Justyna Wróblewska, Andrea Ósk Frímannsdóttir,
Sigurbjörg Auðunsdóttir og Arna Lind Kristinsdóttir.
Á myndina vantar Rebekku Gísladóttir og Bryndísi Bjarnadóttir.
Verðlaunahafar yfir alla yngri flokka drengja.
Efri röð. Sigurbergur Elisson, Viktor Smári Hafsteinsson, Árni Freyr Ásgeirsson og Eiríkur Örn Jónsson.
Neðri röð. Hervar Bragi Eggertsson, Þórður Rúnar Friðjónsson og Magnús Þór Magnússon.