Víkingur - Keflavík á fimmtudag kl. 19:00
Keflvíkingar hefja leik í Lengjubikarnum á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar, þegar þeir mæta Víkingum í Egilshöllinni kl. 19:00. Keflavík er í riðli með ÍA, ÍR, ÍBV, KA, Stjörnunni, Tindastól og að sjálfsögðu Víkingum.
Dómari á morgun verður Halldór B. Jóhannsson og honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Ívar Orri Kristjánsson.
Þá er bara að skella sér til Reykjavíkur á morgun og sjá fyrsta leik Lengjubikarsins.