Fréttir

Knattspyrna | 20. febrúar 2004

Víkurásarmót 4. flokks

Víkurásar mót 4. flokks karla í knattspyrnu fer fram í Reykjaneshöllinni laugardaginn 21. febrúar.  Um er að ræða hraðmót á stórum velli (11 manna bolti) þar sem leiknir eru 1 x 27 mín. leikir. 
Þátttökulið eru Keflavík, Njarðvík, Selfoss, UMF Bessastaðahrepps og Víkingur R.  Aðeins er leikið í A-liða keppni að þessu sinni.
Leikjadagskrá mótsins er sem hér segir:

8:00  Keflavík - Njarðvík
8:29  Víkingur - UMF Bessastaðahrepps
8:58  Selfoss - Njarðvík
9:27  Keflavík - Víkingur
9:56  Selfoss - UMF Bessastaðahrepps
10:25 Njarðvík - Víkingur
10:54 Keflavík - Selfoss
11:23 UMF Bessastaðahrepps  - Njarðvík
11:52 Víkingur - Selfoss
12:21 UMF Bessastaðahrepps - Keflavík

Að mótinu loknu um kl. 12:50 fer fram verðlaunaafhending og pizzuveisla frá Langbest fylgir í kjölfarið.