Fréttir

Vinna á heimaleikjum í sumar
Knattspyrna | 22. apríl 2014

Vinna á heimaleikjum í sumar

Knattspyrnudeild leitar að sjálfboðaliðum til að starfa á heimaleikjum Keflavíkur í sumar.  Við hvetjum stuðningsmenn sem vilja taka þátt í starfi deildarinnar til að nota tækifærið og vinna með skemmtilegum hópi í sumar.  Um er að ræða fjölbreytt störf á leikjum okkar á Nettó-vellinum, m.a. við gæslu, í félagsheimilinu fyrir leiki og ýmis konar reddingar sem fylgja leikjum í efstu deild.  Nánari upplýsingar veitir formaður deildarinnar í síma 421-5188 eða á kef-fc@keflavik.is.  Athugið að verið er að óska eftir sjálfboðaliðum en ekki er um að ræða launuð störf á vegum deildarinnar.