Vöfflur fyrir leik!
Að venju hittast stuðningsmenn Keflavíkur í félagsheimilinu fyrir bikarleikinn gegn KR og þar verður opnað kl. 18:00. Leikurinn verður á Nettó-vellinum og hefst kl. 19:15.
Að þessu sinni ætlar kvennaráð að bjóða upp á vöfflur með rjóma, sultu og súkkulaði á góðu verði en þetta er fjáröflun fyrir kvennaknattspyrnuna í Keflavík. Það er um að gera að mæta og styðja stelpurnar okkar og ekki síður að fá sér vöfflur með öllu sem klikka auðvitað aldrei.