Fréttir

Knattspyrna | 1. október 2009

Willum skrifar undir

Willum Þór Þórsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning sem þjálfari Keflavíkur.  Að lokinni undirrituninni ræddi Willum við leikmenn, stjórnarmenn og forráðamenn Keflavíkurliðsins.  Þar fór nýi þjálfarinn yfir áherslur sínar fyrir starfið framundan.  Gott hljóð var í fólki á fundinum og mikil tilhlökkun að hefja undirbúning fyrir næsta keppnistímabil.

Það þarf auðvitað ekki að kynna Willum Þór fyrir knattspyrnuáhugafólki.  Hann hefur um árabil verið einn fremsti þjálfari landsins en Willum hóf þjálfun í meistaraflokki árið 1997.  Hann hefur síðan stjórnað Þrótti R., Haukum, KR og Val og vann m.a. Íslandsmeistaratitla með KR árin 2002 og 2003 og með Val árið 2007.

Við bjóðum Willum Þór velkominn til starfa hjá Keflavík.

Myndir: Jón Örvar