Yfirlýsing Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Vegna frétta af málefnum Knatspyrnudeildar Keflavíkur vill stjórn deildarinnar að það komi fram að enginn krísufundur hafi verið haldinn hjá deildinni, ekki er búið að ákveða neitt í þjálfaramálum og allar fréttir um slíkt eru úr lausu lofti gripnar.
Fyrirliðinn okkar Haraldur Freyr Guðmundsson hefur gert starfslokasamning við Keflavík að eigin ósk og er farinn til Noregs. Haraldur gerði samning við Start fram að áramótum. Samkomulag var gert á milli knattspyrnudeildar og Haraldar um það að ef hann kemur heim til að spila knattspyrnu þá mun hann klæðast treyju Keflavíkur.
f.h. stjórnar Knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Þorsteinn Magnússon,
formaður