Fréttir

Knattspyrna | 23. desember 2007

Yngri flokka mót í Reykjaneshöll á nýju ári

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Keflavíkur mun standa fyrir eftirtöldum mótum í Reykjaneshöllinni hjá yngri flokkum karla á nýju ári.

4. fl. karla (A–lið)
Laugardaginn 19. janúar kl. 8:00 – 13:00
Hámarksfjöldi liða í mótið: 5 A – lið.
Hraðmótsfyrirkomulag þar sem leiktími er 1 x 27 mín.
Fjöldi leikmanna í liði: 11 manna bolti (stór völlur)
Þátttökugjald: 1300 kr. á hvern þátttakenda.
Innifalið: bikar og verðlaunapeningur fyrir sigurliðið og pizzuveisla.
Skráning í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar.

4. fl. karla (B-lið)
Laugardaginn 19. janúar, kl. 13:00 – 18:00
Hámarksfjöldi liða í mótið: 10 lið
(Mótið er fyrir yngra árs leikmenn eða B-liðs leikmenn)
Fjöldi leikmanna í liði: 7 útileikmenn + markvörður
Leikið er á hálfum velli (50 x 64 m.) með stórum mörkum.
Tilvalinn “stökkpallur” fyrir pilta sem eru að koma upp úr 5. fl.
Þetta leikjafyrirkomulag hefur vakið mikla ánægju s.l. ár.
Þátttökugjald: 1300 kr. á hvern þátttakenda.
Innifalið: bikar og verðlaunapeningur fyrir sigurliðið og pizzuveisla.
Skráning í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar.

5. flokkur karla
Laugardaginn 2. febrúar.
Hámarksfjöldi liða í mótið: 8 A-lið, 8 B-lið, 8 C–lið og 8 D–lið.
Leikið á 4 völlum samtímis. Vallarstærð: 50 x 32 m.
Fjöldi leikmanna í liði: 5 útileikmenn + markvörður
Þátttökugjald: 1250 kr. á hvern þátttakenda
Innifalið: bikar fyrir sigurlið, verðlaunapeningur fyrir alla þátttakendur og pizzuveisla.
Skráning í síðasta lagi miðvikudaginn 23. janúar.

6. flokkur karla
Laugardaginn 9. febrúar.
Hámarksfjöldi liða í mótið: 8 A-lið, 8 B-lið, 8 C–lið og 8 D–lið.
Leikið á 4 völlum samtímis. Vallarstærð: 50 x 32 m.
Fjöldi leikmanna í liði: 6 útileikmenn + markvörður
Þátttökugjald: 1250 kr. á hvern þátttakenda
Innifalið: bikar fyrir sigurlið, verðlaunapeningur fyrir alla þátttakendur og pizzuveisla.
Skráning í síðasta lagi miðvikudaginn 30. janúar.

7. flokkur karla
Laugardaginn 16. febrúar.
Hámarksfjöldi liða í mótið: 8 A-lið, 8 B-lið, 8 C–lið og 8 D–lið.
Leikið á 4 völlum samtímis. Vallarstærð: 50 x 32 m.
Fjöldi leikmanna í liði: 6 útileikmenn + markvörður
Þátttökugjald: 1250 kr. á hvern þátttakenda
Innifalið: Verðlaunapeningur, gjöf og pizzuveisla.
Skráning í síðasta lagi miðvikudaginn 6. febrúar.

  • Mót með þessu fyrirkomulagi hafa verið haldin í Reykjaneshöllinni undanfarin ár og hefur verið mikil ánægja hjá þeim sem sótt hafa mótin.
  • Því miður gátum við ekki haldið mót s.l. haust vegna svifryksmengunnar í Reykjaneshöll.  Stóra 5. flokks mótið okkar, SpKef mótið, féll því miður niður vegna ástandsins í Höllinni en mun að sjálfsögðu vera haldið n.k. haust.
  • Nú er búið að leggja nýtt frábært gervigras í Reykjaneshöllina og aðstæður því fyrsta flokks.
  • Til gamans látum við hér fylgja viðbrögð sem við fengum eftir eitt af mótunum hjá okkur: “Við hjá okkar félagi viljum þakka fyrir frábært mót og það er greinilegt að foreldrar eru gífurlega sáttir við þetta fyrirkomulag.”
  • Það sem við leggjum mikla áherslu á varðandi mótin eru tímasetingar, en með því að hafa eina leikklukku fyrir alla velli hafa tímasetningar staðist svo til 100%.
  • Þar sem liðafjöldi í mótin er takmarkaður hafa færri félög komist að en vilja, því gildir sú regla að þeir sem skrá sig fyrstir ganga fyrir. Venjulega fyllist í mótin á fyrsta degi.
  • Allar nánari upplýsingar gefur mótsstjóri sem tekur jafnframt á móti skráningum.

Mótsstjóri:
Gunnar Magnús Jónsson
S: 899-7158
Netfang: gmjonsson@simnet.is