Fréttir

Knattspyrna | 21. janúar 2004

Zoran framlengir

Zoran Ljubicic, fyrirliði Keflavíkurliðsins, hefur framlengt samning sinn við Keflavík til eins árs.  Þar með er ljóst að kappinn verður með liðinu í Úrvalsdeildinni í sumar þar sem reynsla hans mun án efa reynast liðinu mikilvæg.  Zoran, sem varð 37 ára á dögunum, hefur leikið með Keflavík frá árinu 1999 og er kominn með 87 deildarleiki fyrir liðið og hefur skorað í þeim 5 mörk.