Zoran hættur með Keflavík
Yfirlýsing Knattspyrnudeildar Keflavíkur og Zoran Daníels Ljubicic.
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Zoran Daníel Ljubicic hafa komist að samkomulagi um að Zoran stígi frá sem aðalþjálfari Keflavíkur. Zoran tók við liðinu haustið 2011 og stýrði liðinu í 9. sæti árið 2012. Árangurinn í ár hefur ekki staðist væntingar og þess vegna er farið í þessa erfiðu ákvörðun að slíta samstarfinu.
Zoran er gegnheill Keflvíkingur og hefur hann lagt mikla vinnu á sig fyrir félagði en hann hefur þjálfað alla flokka hjá Keflavík. Knattspyrnudeildin vill þakka honum fyrir hans störf með meistarflokk karla undanfarin tvö ár og óskar honum velgengis á komandi árum
f.h. Knattspyrnudeildar Keflavíkur,
Þorsteinn Magnússon, formaður
Zoran Daníel Ljubicic