Zoran þjálfar Keflavík
Zoran Daníel Ljubicic verður næsti þjálfari meistaraflokks karla hjá Keflavík. Það þarf ekki að kynna Zoran fyrir stuðningsmönnum Keflavíkur en hann lék með liðinu á sínum tíma en hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka Keflavíkur og náð frábærum árangri. Zoran lék á sínum tíma 162 leiki með Keflavík í öllum keppnum og skoraði 12 mörk og hann var fyrirliði bikameistaraliðs Keflavíkur árið 2004.
Rætt hefur verið við annan fyrrverandi leikmann og þjálfara Keflavíkur, Gunnar Oddsson, um að gegna starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks en Gunnar hefur tekið sér frest til að ákveða hvort hann tekur starfið að sér.