Upplýsingar og skráning

ÆFINGAGJÖLD OG SKRÁNING

Skráning iðkenda

  • Allir iðkendur í Knattspyrnudeild Keflavíkur þurfa að vera skráðir og miðast tímabilið við lok september og út ágúst næsta ár.
  • Forráðamenn skrá sín börn inn í Sportabler skráningakerfið og þarf að endurnýja skráningu árlega.
  • Skráningar fara áfram fram í gegnum Sportabler sem hægt er að nálgast á heimasíðu Keflavíkur eða á slóðinni https://www.sportabler.com/shop/keflavik
  • Foreldrar sæki sér  Sportabler appið.

Æfingagjöld september 2023 til og með ágúst 2024

  • 3.-5. flokkur - kr. 147.500
  • 6. flokkur - kr. 141.600
  • 7. flokkur - kr. 100.000
  • 8. flokkur - kr. 50.000-75.000
  • Systkinaafsláttur 10%.
  • Gjaldið er fast óháð æfingasókn iðkenda.
    ATH! Æfingagjöld hækka um 10% ef skráð er eftir 31.október

Greiðslur

  • Kreditkort - hægt að skipta greiðslum niður á 1 - 11 greiðslur (2% umsýslugjald leggst á heildargjaldið)
  • Greiðsluseðill (skipt niður á 10 greiðslur, nema í 7. flokki þar sem hámarkið er 9 greiðslur) í byrjun hvers tímabils. Athugið að greiðsluseðlar eru sendir í gegnum Motus og leggst seðilgjald á hvern reikning auk þess sem vextir reiknast á greiðsluseðla séu þeir greiddir eftir gjalddaga.
  • Greiðslur æfingagjalda eru forsenda þess að iðkandi megi taka þátt í æfingum og mótum/leikjum á vegum Keflavíkur.

Iðkandi hættir:

  • Þegar iðkandi hættir skal senda tilkynningu í tölvupósti á hjordis@keflavik.is þar sem fram kemur nafn og
    kennitala iðkandans
  •  Æfingagjöld falla niður frá næstu mánaðamótum eftir að forráðamaður hefur tilkynnt með tölvupósti að
     iðkandi sé hættur. Ekki nóg að láta þjálfara vita.
  • Æfingagjöld ekki endurgreidd afturvirkt.

Hvatagreiðslur

  • Hvatagreiðslur Reykjanesbæjar eru rafrænar og hafa forráðamenn sem skrá iðkendur á þessu ári val um að haka við í skráningarferlinu um að nota hvatagreiðsluna til lækkunar æfingargjaldinu.  
  • Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjanesbæjar   Hvatagreiðslur/Incentive payments | Upplýsingavefur sveitarfélagsins Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is)
  • Hvatagreiðsla fyrir árið 2023 er 45.000 kr
  • Það er ábyrgð foreldra og forráðamanna að ráðstafa hvatagreiðslum
  • Hvatagreiðslur fást ekki endurgreiddar til foreldra eftir að þeim hefur verið ráðstafað.

Ferðakostnaður og mótakostnaður

  • Er greiddur af iðkendum, kostnaðurinn er misjafn eftir því í hvaða flokki iðkandi er og hver verkefnin eru. Barna- og unglingaráð greiðir ferðakostnað þjálfara í keppnisferðum vegna Íslands- og Faxaflóamóts, ekki öðrum mótum.

Keppnisbúningur

  • Keflavík er með samning við Sport 24 og kemur æfinga og keppnisfatnaður frá Adidas.  Hægt er að nálgast allan fatnað til sölu hjá Sport 24.  Hver iðkandi fær úthlutað sínu númeri hjá yfirþjálfara sem fylgir þeim upp yngri flokka.  Hægt er að fá upplýsingar um það hjá solrun@keflavik.is