Eiður Orri og Aníta Lind knattspyrnufólk ársins
Eiður Orri og Anita Lind leikmenn ársins hjá Keflavík

Lokahóf knattspyrnudeildar Keflavíkur fór fram í Bluehöllinni laugardaginn 24. október þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman til að gera upp knattspyrnuárið 2026. Fjöldi viðurkenninga var veittur fyrir góðan árangur og framlag til félagsins.
Eiður Orri Ragnarsson og Anita Lind Daníelsdóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna að mati samherja sinna.
Þá hlaut Björgvin Björgvinsson viðurkenningu sem þjálfari ársins.
Ariela Lewis hlaut gullskó kvennaliðsins með 13 mörk og Stefan Alexander Ljubicic gullskó karlaliðsins með 12 mörk. Margrét Viktoría Harðardóttir og Þorlákur Breki Þórarinsson Baxter voru valin efnilegustu leikmenn meistaraflokkanna.
Hilda Rún Hafsteinsdóttir hlaut verðlaun fyrir mark ársins hjá konunum, gegn Gróttu, en Alpha Bedor Conteh hjá körlunum fyrir sigurmark sitt gegn KR.
Í öðrum flokki voru Viktor Árni Traustason og Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir valin leikmenn ársins. Arnór Atli Aðalbjörnsson og Guðlaug Emma Kristinsdóttir hlutu viðurkenningar sem efnilegustu leikmennirnir.
Sérstök stund kvöldsins var þegar Frans Elvarsson var heiðraður fyrir einstakt framlag sitt til Keflavíkur. Frans hefur leikið hátt í 400 leiki fyrir félagið á sextán tímabilum og er leikjahæsti leikmaður í sögu Keflavíkur.

Einnig voru leikmenn sem kveðja félagið heiðraðir, ásamt útskriftarhópi annars flokks. Þá fengu fjölmargir leikmenn viðurkenningar fyrir leikjafjölda sinn.
Sjálfboðaliðum félagsins voru jafnframt færðar sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt starf á tímabilinu.
Lokahófið markaði þannig lok viðburðaríks knattspyrnuárs þar sem karlaliðið tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildarinnar og félagið fagnaði árangri, samstöðu og öflugu starfi innan sinna raða.
Tengill á myndir og frétta á facebooksíðu Knattspyrnudeildar
