Fréttir

Keflavíkurlið sem fer pressulaust og óhrætt inn í mótið
Knattspyrna | 10. apríl 2026

Keflavíkurlið sem fer pressulaust og óhrætt inn í mótið

Þeir eru ekki margir sparkspekingar sem veðja á gott gengi Keflavíkur í sumar í Bestu deild karla í fótbolta. Flestir sérfræðingar hafa þegar dregið upp sömu myndina, nýliðar sem komust með herkjum í gegnum úrslitakeppni, óstöðugir undanfarin ár og óþekkt stærð í Bestu deild. Haraldur Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, nálgast verkefnið af yfirvegun. Engar stórar yfirlýsingar – bara skýr fókus á það sem er fram undan, en deildin hefst 12. apríl hjá Keflvíkingum þegar þeir mæta KR á útivelli.

„Spá er alltaf spá. Það er eðlilegt að lið sem kemur upp sé spáð í neðri hlutanum þannig að það kemur okkur ekkert á óvart. Okkur er spáð líklega neðst alls staðar og það er auðvitað okkar að afsanna það. Það þarf að spila leikina og það getur allt gerst og okkar markmið er auðvitað að halda okkur uppi,“ segir Haraldur sem heldur nú inn í sitt þriðja heila tímabil sem þjálfari uppeldisfélags síns. Hann er með gott teymi í kringum sig. Hugsanlega er sjaldgæft að þrír bestu æskuvinir séu við stjórnvölinn hjá félagi í efstu deild, en þeir Hólmar Örn Rúnarsson og Ómar Jóhannsson eru í teyminu með Haraldi. Gallharðir Keflvíkingar sem þekkja hvorn annan og félagið, inn og út.

„Fyrst og fremst finnst mér frábært að fyrrum leikmenn og aðrir Keflvíkingar séu tilbúnir að vinna fyrir klúbbinn. Það er einhver keflvísk rómantík í því að við séum þarna allir þrír félagarnir. Við náum ágætlega vel saman í leik og starfi. Við erum með ákveðin hlutverkaskipti en auðvitað erum við með skiptar skoðanir og ekki alltaf sammála. Þetta eru ekki bara „high five“ og já, heldur komumst við saman að niðurstöðu.“

Síðast var Keflavík í Bestu deild karla árið 2023. Árið eftir var liðið hársbreidd frá því að fara aftur upp en tapaði í úrslitaleik á Laugardalsvelli gegn Aftureldingu. Á síðasta tímabili var liðið að spila undir væntingum. Hópurinn var sterkur en stöðugleikinn ekki til staðar. Það breyttist þó undir lok tímabils þegar gamla bikarliðið fann taktinn og tryggði sér sæti í Bestu deild eftir sannfærandi sigur gegn HK á Laugardalsvelli. Þar small allt. Leikmenn sem og stuðningsmenn fundu sitt gamla form og þjóðarleikvangurinn varð um stund sá völlur sem Keflvíkingar upplifðu margar af sínum bestu minningum en félagið vann þar bikarmeistaratitla í kringum síðustu aldarmót, 1997, 2004 og 2006, að ógleymdum bikar 1975.

„Síðustu leikina í deildinni var mikið undir hjá okkur. Þá fannst mér liðið rísa upp og standast ákveðin próf og sýna úr hverju það er gert. Þetta er klárlega eitthvað sem við getum tekið með okkur í nýtt tímabil “ segir Haraldur sem sjálfur var alinn upp í kringum þessa velgengni. Keflavík var félag sem var í efstu deild og barðist um bikara við og við. Ef við förum lengra aftur í tímann er auðvitað sterk arfleifð hjá félaginu sem hefur unnið fjóra Íslandsmeistaratitla.

Keflavík ætlar sér þó ekki að fara inn í deildina til að lifa á voninni eða gömlum minningum. „Við munum sjá Keflavíkurlið sem fer pressulaust og óhrætt inn í mótið. Við reynum að spila skemmtilegan fótbolta í bland við góðan varnarleik. Það er lykilatriði að vera sterkir varnarlega og góðir í hröðum sóknum. Það hefur verið okkar styrkleiki undanfarið,“ segir þjálfarinn Haraldur að endingu.